












Tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar er staðsett norðan íþróttamiðstöðvar sveitarinnar. Svæðið er veðursælt og tjaldsvæðið á flötu þurrlendi og því er mögulegt að opna svæðið snemma á vorin. Almennt er opnað um 15. maí og opið til 30. september, ef aðstæður leyfa, en lokað er fyrir vatn um leið og það tekur að frysta.
Á tjaldsvæðinu eru salerni og aðstaða til að vaska upp með heitu og köldu vatni. Inniaðstaða opnar í kjallara íþróttamiðstöðvarinnar í upphafi júní og er hún opin til 20. ágúst. Þar eru snyrtingar og sturtur ásamt þvottavél sem hægt er að greiða fyrir afnot af.
Tjaldverðir eru við störf á sumrin en einnig er hægt að sækja þjónustu í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar sem opin er frá kl. 6.30 – 22 virka daga og 10 – 20 um helgar og á rauðum dögum. Þar er að finna sjálfsafgreiðsluvél þar sem hægt er að bóka gistingu á tjaldsvæðinu og greiða, auk lítillar sjoppu og kaffisölu. Annars er starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar og tjaldverðir þekkt fyrir mikla og góða þjónustulund og leita þau ávallt leiða til að þjónusta gesti okkar sem best.
Gistináttagjald 400 kr.- legst ofan á allar seldar gistinætur (hver nótt fyrir hvert stæði, óháð fjölda einstaklinga í gistingu).
Hægt er að bóka stæði fyrirfram á svæðum B, C, D og E á vef Reisa.is frá 1. maí.
Við setjum inn upplýsingar á Facebook-síðu íþróttamiðstöðvarinnar ef tjaldsvæðið þegar tjaldsvæðið okkar er orðið fullt. https://www.facebook.com/Sundlauginhrafnagili/
Tjaldsvæðinu er skipt upp í 5 svæði og eru nánari útskýringar hér:
Svæði A
Svæði B
Svæði C
Svæði D
Svæði E
Afþreying
Sparkvöllur, ærslabelgur og glæsilegur útikörfuboltavöllur eru við tjaldsvæðið sem og leiksvæði Hrafnagilsskóla þar sem ýmis leiktæki hafa í áranna rás verið vinsæl leiksvæði barna.
Margar gönguleiðir eru í kring um Hrafnagilshverfið og hægt að fá upplýsingar hjá tjaldvörðum og starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar. Þá hefur vinna við útivistarsvæði neðan við hverfið staðið yfir eftir að vegurinn var færður niður fyrir og í náinni framtíð verður þar útivistarsvæði sem tjaldsvæðisgestir geta nýtt sér, rétt eins og íbúar.
Athugið
Framkvæmdir standa yfir við íþróttamiðstöðina og Hrafnagilsskóla þar sem verið er að stækka skólann og aðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar og má búast við lífi og fjöri á framkvæmdasvæðinu en litlar líkur eru á því að þetta hafi bein áhrif á gesti tjaldsvæðisins.
Aldurstakmark á Bíladögum
Á meðan Bíladagar standa yfir á Akureyri er 30 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu og ekki hægt að bóka á bókunarsíðunni, aðeins með tölvupósti á netfangið camping@esveit.is eða síma. Fjölskyldur eru þó velkomnar þar sem tjaldsvæðið okkar er fjölskyldutjaldsvæði. Gæsla er á svæðinu helgina sem Bíladagar standa yfir. Hefur þetta fyrirkomulag gefist vel og bílaáhugafjölskyldur verið ánægðar með það.
Verslunarmannahelgin
Tjaldsvæðið er fjölskyldutjaldsvæði með aldurstakmark 18 ára. Engum undir aldurstakmarkinu er því heimilt að vera á svæðinu nema í fylgd með sínum forráðamönnum. Fjölskyldufólk eldri en 18 ára er hjartanlega velkomið.
Þetta svæði er "fyrstur kemur, fyrstur fær". Aðeins er hægt að ganga frá greiðslu við komu á svæðið, í afgreiðslu sundlaugar eða með QR kóða á staðnum.
Á þessu svæði eru 15 hólf sem hægt er að bóka á netinu. Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn. Skiptitími hólfa er kl. 12:00.
Á þessu svæði eru 14 hólf sem hægt er að bóka á netinu. Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn. Skiptitími hólfa er kl. 12:00.
Á þessu svæði eru 13 hólf sem hægt er að bóka á netinu. Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn. Skiptitími hólfa er kl. 12:00.
Á þessu svæði eru 17 hólf sem hægt er að bóka á netinu. Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn. Skiptitími hólfa er kl. 12:00.
Fleiri hólf geta birst þegar þysjað er inn. Smellið á merkingar til að sjá upplýsingar.



Eftirfarandi þjónusta og afþreying er í boði á svæðinu.
Blómleg ferðaþjónusta er í Eyjafjarðarsveit þar sem hægt er að gera sér góðan dag með því að aka sveitarhringinn og bera þar augum fallega náttúruna sem Eyjafjarðará liðast um.
Á heimasíðu Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar og Markaðsstofu Norðurlands má nálgast upplýsingar um þjónustuaðila í sveitarfélaginu.
Góðar göngu- og hjólaleiðir eru í sveitinni og afar vinsælt að ferðast um útivistastíginn milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar. Þá er hægt að ganga á ýmis fjöll í sveitarfélaginu og gnæfir tignarleg Kerling hæst yfir þeim öllum.
Í Hrafnagshverfi er fjölskylduvæn sundlaug með varðlaug og stórri rennibraut ásamt leiktækjum sem umvefja umhverfi hennar ásamt glæsilegu og fullbúnu tjaldsvæði. Þar má einnig finna Jólahúsið sem sett hefur svip sinn á ferðaþjónustu á norðurlandi um árabil. Í sveitinni má bera augum sex fallegar kirkjur og hið frábæra Smámunasafn Sverris Hermannssonar sem hefur að geyma skemmtilegan karakter og fjölda muna af allri heimsins gerð.
Fjölbreytt úrval gistimöguleika, veitinga og afþreyingar er í Eyjafjarðarsveit og geta gestir svæðisins notið matar úr héraði, dægrastyttingar og gistingar í kyrrð og nálægt við náttúru og persónuleika sveitarinnar.